25. júní 2025

Innköllun á VÄRDEFULL, hvítlaukspressu frá IKEA

25. júní 2025

Innköllun á VÄRDEFULL, hvítlaukspressu frá IKEA

Eldhúsáhöld

Heimili

Innköllun

Ikea innkallar VÄRDEFULL hvítlaukspressu. Hætta er á að lítil málmstykki losni við notkun og komist í matvæli. Hvítlaukspressan er með svart handfang með dagstimplum frá 2411 (YYWW) til 2522 (YYWW). Hægt er að þekkja þær vörur sem falla undir þessa innköllun á IKEA myndmerkinu á efri hluta handfangsins eins og sést á mynd 2 sem fylgir fréttinni.                                                    

IKEA biður alla viðskiptavini sem eiga svarta IKEA 365+ hvítlaukspressu til að taka hana úr umferð og skila í IKEA. Þessi vara hefur verið seld á númerunum 201.521.58, 305.781.89 og 601.636.02 um allan heim.

Vöruheiti

VÄRDEFULL, hvítlaukspressa

Vörumerki

IKEA 365+

Hver er hættan?

Hætta er á að lítil málmstykki losni við notkun og komist í matvæli

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

IKEA biður alla viðskiptavini sem eiga svarta IKEA 365+ hvítlaukspressu til að taka hana úr umferð og skila í IKEA. Þessi vara hefur verið seld á númerunum 201.521.58, 305.781.89 og 601.636.02 um allan heim. Ef viðskiptavinir eru ekki vissir með vörunúmerin þá geta þeir skilað hvaða svörtu IKEA 365+ VÄRDEFULL hvítlaukspressu sem er og fengið hana endurgreidda.

Söluaðilar

Nánari upplýsingar eru veittar í þjónustuveri IKEA í síma 520 2500 og á IKEA.is.

Vörunúmer

201.521.58
305.781.89
601.636.02

Deildu

Nýjar tilkynningar

Leikföng

Tilkynning

3. júlí 2026

Innköllun í Bretlandi á leikfanginu Squeezy Dumplings

HMS og Umhverfis- og orkustofnun vekja athygli á innköllun í Bretlandi á Squeezy Dumplings leikfangi vegna efnahættu. Um er að ræða mjúkt plastleikfang í körfulaga plastumbúðum. Varan hefur verið innkölluð í Bretlandi þar sem ytra lag leikfangsins inniheldur of mikið magn af benseni. Bensen er þekkt krabbameinsvaldandi efni og getur valdið skemmdum á erfðaefni. Því er mikilvægt að draga úr allri ónauðsynlegri útsetningu fyrir efninu, sérstaklega hjá börnum. Innöndun bensens getur jafnframt valdið ertingu í augum, nefi og hálsi. Útsetning fyrir miklu magni getur einnig valdið sviðatilfinningu í meltingarvegi og ertingu í húð. Dreifingaraðili vörunnar í Bretlandi er Samsons Cash and Carry Ltd. Á vörunni er hvorki vörunúmer né lotunúmer. Ekki er vitað hvort varan hafi verið seld hér á landi, en gera má ráð fyrir að hún geti verið í umferð hérlendis, til dæmis vegna kaupa erlendis eða í gegnum netverslanir. Neytendur sem eiga vöruna eru hvattir til að hætta notkun hennar tafarlaust. Jafnframt eru foreldrar og forráðamenn hvattir til að vera vakandi fyrir leikföngum barna sinna. Ef leikfang hefur sterka eða óvenjulega efnalykt, eða ef grunur vaknar um að það geti verið óöruggt, er ráðlagt að taka það úr umferð og láta börn ekki leika sér með það. Nánari upplýsingar má finna í tilkynningu breskra yfirvalda í tengli hér fyrir neðan.