18. júní 2025

Innköllun á koppafeitisprautu frá Makita

18. júní 2025

Innköllun á koppafeitisprautu frá Makita

Rafmagnstæki

Innköllun

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) vekur athygli á innköllun á koppafeitisbyssu frá Makita. Hættan sem fylgir notkun tækisins er að slangan á tækinu getur gefið sig og koppafeiti sprautast út við háan þrýsting. Nokkur tilvik hafa verið tilkynnt vegna meiðsla á fingrum við notkun tækisins.

Makita býður eigendum að skipta út slöngunni til að koma í veg fyrir frekari slys. Varan var seld hjá Þór HF en hugsanlega einnig á fleiri stöðum.

Hægt er að hafa samband við verslunina Þór hf. í gegnum tölvupóstin thor@thor.is fyrir frekari upplýsingar varðandi nýja slöngu.

Vöruheiti

DGP180:Cordless grease gun

Vörumerki

Makita

Hver er hættan?

Hættan sem fylgir notkun tækisins er að slangan á tækinu getur gefið sig og koppafeiti sprautast út við háan þrýsting. Nokkur tilvik hafa verið tilkynnt vegna meiðsla á fingrum við notkun tækisins.

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

Hætta notkun tækisins þegar í stað og hafa samanband við verslunina Þór hf í gegnum tölvupóst thor@thor.is

Söluaðilar

Þór hf og hugsanlega aðrir sölustaðir

Vörunúmer

FLEXIBLE HOSE 600  P/N.191A80-4 
FLEXIBLE HOSE 600   P/N. 191W59-7 
FLEXIBLE HOSE 1200  P/N. 191A79-9    
FLEXIBLE HOSE  200  P/N. 191W58-9  

Deildu

Nýjar tilkynningar