9. febrúar 2026

Done by Deer innkallar barnabrúsa

9. febrúar 2026

Done by Deer innkallar barnabrúsa

Barnavörur

Börn

Innköllun

HMS barst tilkynning frá tilkynningakerfi Evrópu, (Safety Gate) um að verið væri að innkalla brúsa frá Done by Deer sem heita Gourde Tiny Farm. Brúsarnir eru ljósbláir og bleikir með myndum af dýrum. Módel númerin eru 1056381 og 1056392.

Hætta er á að ól sem er á brúsanum geti losnað og bandið valdið því að barnið getur kyrkst.

Done by Deer er þegar byrjað að auglýsa innköllun vörunnar og mikilvægt er að farga þeim eintökum sem eru í umferð.

HMS hvetur alla sem eiga vöruna til að hætta notkun hennar strax og hafa samband við seljanda eða framleiðanda til að skila og fá endurgreiðslu á vörunni.

Vöruheiti

Barnabrúsar

Vörumerki

Done by Deer

Hver er hættan?

Hætta er á að ól sem er á brúsanum geti losnað og bandið valdið því að barnið getur kyrkst.

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

Hætta notkun brúsana strax og hafa samband við seljanda eða framleiðanda til að fá endurgreiðslu eða skila vörunni.

Vörunúmer

Brúsarnir eru ljósbláir og bleikir með myndum dýrum.
Módel númerin eru 1056381 og 1056392.

Deildu

Nýjar tilkynningar