4. júní 2026

Innköllun á undirstöðu fyrir Maxi-Cosi barnabílstól (FamilyFix Slide Pro base)

4. júní 2026

Innköllun á undirstöðu fyrir Maxi-Cosi barnabílstól (FamilyFix Slide Pro base)

Barnabílstóll

Öryggisbúnaður

Barnavörur

Innköllun

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) fékk tilkynningu um innköllun á undirstöðu fyrir Maxi Cosy barnabílstól (e.Maxi-Cosi FamilyFix Slide Pro base). Varan hefur verið seld í Fífu barnavöruverslun.

Samkvæmt upplýsingum frá framleiðanda nær innköllunin til undirstaða (e.base) með vörunúmerið 8065057110 sem framleiddar voru á tímabilinu 6. september 2025 til 24. mars 2026.

Komið hefur í ljós að vísir sem sýnir hvort barnabílstóll sé rétt festur á undirstöðuna getur sýnt grænt ljós þótt stóllinn sé ekki að fullu festur. Notandi getur því talið að stóllinn sé rétt tengdur þegar svo er ekki. Við slíkar aðstæður er hætta á að stóllinn hreyfist eða losni, sem getur valdið meiðslum.

Í tilkynningunni kemur fram að ekki eigi að halda áfram að nota vöruna fyrr en farið hefur verið eftir leiðbeiningum framleiðandans. Nánari upplýsingar má nálgast hjá Fífu barnavöruverslun.  Nýjar undirstöður (e.base) eru á leiðinni til landsins og mun verslunin sjá um að skipta út vörunum um leið og þær berast.

Samkvæmt upplýsingum frá Fífu hefur ekki enn náðst í sjö eigendur á FamilyFix Slide Pro base vörunni.  HMS hvetur því þá sem eiga slíka undirstöðu (e.base) til að athuga hvort hún sé meðal þeirra vara sem innköllunin nær til.

Þótt innköllun barnabílstóls eða fylgihluta þeirra geti valdið áhyggjum er mikilvægt að hafa í huga að innköllunarferli eru hluti af öryggiskerfi sem ætlað er að vernda neytendur og auka öryggi barna í umferðinni.

Vöruheiti

Maxi-Cosi FamilyFix Slide Pro base

Vörumerki

Maxi-Cosi

Hver er hættan?

Komið hefur í ljós að vísir sem sýnir hvort barnabílstóll sé rétt festur á undirstöðuna getur sýnt grænt ljós þótt stóllinn sé ekki að fullu festur. Notandi getur því talið að stóllinn sé rétt tengdur þegar svo er ekki. Við slíkar aðstæður er hætta á að stóllinn hreyfist eða losni, sem getur valdið meiðslum.

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

Ekki halda áfram að nota vöruna fyrr en farið hefur verið eftir leiðbeiningum framleiðandans. Nánari upplýsingar má nálgast hjá Fífu barnavöruverslun.  Nýjar undirstöður (e.base) eru á leiðinni til landsins og mun verslunin sjá um að skipta út base-um um leið og þau berast.

Söluaðilar

Fífa barnavöruverslun

Vörunúmer

8065057110

Framleidd á tímabilinu 6. september 2025 til 24. mars 2026.

Deildu

Nýjar tilkynningar

Barnabílstóll

Innköllun

1. júní 2026

Innköllun á Joolz Aer2 bílstólafestingum

HMS hefur borist tilkynning um innköllun á Joolz Aer2 bílstólafestingum vegna öryggisvanda sem getur komið upp við notkun. Samkvæmt tilkynningu frá framleiðanda Joolz geta festingarnar ekki alltaf læst sig rétt við Joolz Aer2 kerruna. Í ákveðnum tilfellum getur það valdið því að festingarnar losni við notkun, með þeim afleiðingum að bílstóll geti hallast fram eða fallið til jarðar. Alls hafa verið 28 atvik tilkynnt og þar af tilkynnt um slys/áverka í tveimur tilfellum. Það áréttast að hvorugt slysið átti sér stað á Íslandi. Varan sem innköllunin nær til ·       Vara: Joolz Aer2 bílstólafestingar ·       Vörunúmer: 320400 ·       Raðnúmer: NL311 ·       EAN: 8715688096512 ·       Sölutímabil: júní 2025 – maí 2026 Tekið er fram í tilkynningunni að innköllunin snýr eingöngu að Joolz Aer2 bílstólafestingunum. Joolz Aer2 kerran sjálf er ekki hluti af innkölluninni og er áfram talin örugg í notkun án festinganna. Eigendur eru beðnir um að hætta tafarlaust notkun á Joolz Aer2 bílstólafestingunum og farga vörunni á umhverfisvænan hátt. Skrá vöruna á innköllunarsíðu Joolz: https://service.joolz.com/s/car-seat-adapter-set-recall?language=en_US Joolz gerir ráð fyrir að endurbætt útgáfa af festingunum verði fáanleg frá byrjun júlí 2026. Að sögn fyrirtækisins er öryggi barna og foreldra í algjörum forgangi og er innköllunin framkvæmd af þeim sökum. Búið er að hafa samband við flesta kaupendur, en ekki hefur náðst í eigendur fjögurra eininga. Í tilkynningunni kemur fram að þrátt fyrir að verslun Mía sem dreifði vörunni sé lokuð er verið að koma upplýsingunum á framfæri til að tryggja að allir viðeigandi aðilar fái tilkynninguna sem fyrst. Fyrirtækið biðst velvirðingar á þeim óþægindum og áhyggjum sem þetta kann að valda.

Frístundabúnaður

Innköllun

14. apríl 2026

Innköllun á klifurbúnaði frá Petzl

HMS hefur borist tilkynning um hættulegar ísaxir og klifurbelti frá framleiðandanum Petzl sem hafa verið sett á markað og eru nú til innköllunar. Ísaxirnar sem eru innkallaðar heita Piolets, hætta er á að handfangið getur brotnað við notkun á ísöxunum sem getur leitt til falls og meiðsla. Módelnúmerið er ERGONOMIC U022AA00 framleitt í júní 2018 til desember 2021 og NOMIC U021AA00 framleitt í desember 2017 til júní 2020. Hérlendis hafa 16 ísaxir verið í dreifingu. Þegar hefur verið brugðist við og hafa sex ísaxir verið innkallaðir. Vinna við að ná til þeirra eintaka sem eftir standa er áfram í gangi. Petzl innkallar einnig klifurbelti af gerðinni Canyon Guide  eftir að alvarlegur galli fannst í festibúnaði.  Gallinn getur valdið því að festing opnast við notkun, sem eykur hættu á falli og alvarlegum meiðslum. Um er að ræða módel C086BA00 og C086BA01 með lotunúmerum eldri en 23J9999999 999. Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum HMS eru enn tvö klifurbelti í umferð sem mikilvægt er að finna og taka úr notkun hið fyrsta. Viðkomandi vörur hafa meðal annars verið til sölu hjá Fjallakofanum og Stoðtækjum. Neytendur sem hafa keypt umræddar vörur eru hvattir til að hætta notkun þeirra tafarlaust og hafa samband við söluaðila til að fá frekari upplýsingar. Nánari upplýsingar um innköllunina má finna á vef Safety Gate, sjá fyrir neðan https://ec.europa.eu/safety-gate-alerts/screen/webReport/alertDetail/10098401?lang=en https://ec.europa.eu/safety-gate-alerts/screen/webReport/alertDetail/10098339?lang=en HMS biðlar jafnframt til fyrirtækja sem kunna að hafa haft þessar klifurvörur til sölu að hafa samband og staðfesta hvort viðkomandi vörur hafi verið í þeirra vöruframboði. Öryggi notenda er ávallt í forgangi og er mikilvægt að bregðast hratt við til að koma í veg fyrir slys.