15. maí 2026

Öryggistilkynning vegna segulspilsins Kluster

15. maí 2026

Öryggistilkynning vegna segulspilsins Kluster

Leikföng

Barnavörur

Tilkynning

HMS vekur athygli á spilinu Kluster vegna segulstyrks í seglum sem fylgja spilinu. Segulstyrkurinn er mjög hár og ef barn gleypir tvo eða fleiri segla geta þeir dregist saman í meltingarvegi og valdið alvarlegum innvortis meiðslum eins og garnastíflu eða rofi á þörmum.

Athugið að búið er að endurútgefa spilið en öryggistilkynningin á sérstaklega við um eldri útgáfur spilsins þar sem seglarnir eru mjög smáir. Nýrri útgáfa af spilinu er með stærri segla og því minni líkur að hægt sé að innbyrða seglana. Framleiðendur hafa sett aldursviðmið spilsins í 14+.

HMS hvetur eigendur spilsins að halda því frá ungum börnum.

Vöruheiti

Kluster

Vörumerki

Borderline Editions

Hver er hættan?

Segulstyrkurinn er mjög hár og ef barn gleypir tvo eða fleiri segla geta þeir dregist saman í meltingarvegi og valdið alvarlegum innvortis meiðslum eins og garnastíflu eða rofi á þörmum.

Lýsing á pakkningum

Pappakassi

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

HMS hvetur eigendur spilsins að halda því frá ungum börnum.

Söluaðilar

Spilið hefur verið selt á mörgum stöðum innanlands og í vefverslunum.

Vörunúmer

KLUS01

Strikamerki

3770003625605

Deildu

Nýjar tilkynningar