11. febrúar 2026

IKEA innkallar ákveðin NYMÅNE veggljós vegna hættu á rafstuði

11. febrúar 2026

IKEA innkallar ákveðin NYMÅNE veggljós vegna hættu á rafstuði

Rafmagnstæki

Innköllun

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) vekur athygli á innköllun frá IKEA á ákveðnum tegundum af NYMÅNE veggljósum. Vegna framleiðslugalla eru rafmagnsvírar ekki nægilega vel einangraðir, sem getur skapað hættu á rafstuði. Hægt er að sjá hvort varan falli undir innköllunina á dagstimpli og framleiðandanúmeri ljósanna.

Vörur sem umræðir eru:

-  NYMÅNE veggljós/lesljós, hvítt. Vörunúmer: 203.569.09

-  NYMÅNE veggljós/lesljós, kolgrátt. Vörunúmer: 504.152.24

Eftirtaldir dagstimplar (ÁÁVV) falla undir innköllunina: Frá 2217 til 2550 (frá viku 17, 2022 til viku 50, 2025) frá framleiðanda númer 23241. Hægt er að finna dagstimpil og framleiðandanúmer á límmiða inni í lampaskerminum en athugið að taka þarf ljósaperuna úr til að sjá númerin .Viðskiptavinir skulu alltaf taka vegglampann úr sambandi áður er þeir handleika hann.

Eigendur ljósanna eru hvattir til að taka þau strax úr umferð og hafa samband við IKEA til að fá nýja vöru eða endurgreiðslu. Nánari upplýsingar eru veittar í þjónustuveri í síma 520 2500 og á IKEA.is.

Athugið að vörur með dagstimpla fyrir 2217 og eftir 2550 eða með öðru framleiðandanúmeri falla ekki undir innköllunina.

Vöruheiti

NYMÅNE veggljós/lesljós

Vörumerki

IKEA

Hver er hættan?

Vegna framleiðslugalla eru rafmagnsvírar ekki nægilega vel einangraðir, sem getur skapað hættu á rafstuði.

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

Kanna hvort þeirra ljós falli undir innköllunina, hægt er að finna dagstimpil og framleiðandanúmer á límmiða inni í lampaskerminum. Viðskiptavinir skulu ávallt taka vegglampann úr sambandi áður en hann er handleikinn. Eigendur ljósanna eru hvattir til að taka þau tafarlaust úr notkun og hafa samband við IKEA til að fá nýja vöru eða endurgreiðslu.

Vörunúmer

NYMÅNE veggljós/lesljós, hvítt. Vörunúmer: 203.569.09

NYMÅNE veggljós/lesljós, kolgrátt. Vörunúmer: 504.152.24

Eftirtaldir dagstimplar (ÁÁVV) falla undir innköllunina:

Frá 2217 til 2550 (frá viku 17, 2022 til viku 50, 2025) frá framleiðanda númer 23241.

Deildu

Nýjar tilkynningar

Barnabílstóll

Innköllun

21. október 2026

Innköllun á BABY-SAFE PRO barnabílstólum frá Britax Römer

Britax Römer hefur ákveðið að innkalla ákveðna BABY-SAFE PRO barnabílstóla sem framleiddir voru frá 26. desember 2025 til 30. september 2026. Stólarnir hafa verið seldir bæði stakir og í setti með VARIO BASE 5Z ISOFIX-base. Stólarnir hafa meðal annars verið seldir hér á landi hjá Fífu. Ákvörðunin um innköllunina var tekin eftir að þýska óháða neytendaprófunarstofnunin Stiftung Warentest fann vandamál við prófun á stólnum þegar hann var festur á VARIO BASE 5Z í mest hallandi stöðu. Þá getur smellan á öryggisbeltinu losnað eða brotnað við framanákeyrslu, með þeim afleiðingum að barnið er ekki nægilega tryggilega fest í stólnum. Vandamálið kom ekki fram þegar stóllinn var í uppréttri stöðu á VARIO BASE 5Z eða þegar stóllinn var festur í bifreiðina með öryggisbelti. Við nánari skoðun og yfirferð hefur Britax Römer afmarkað innköllunina við BABY-SAFE PRO stóla þar sem smella öryggisbeltisins er úr tiltekinni framleiðslulotu. Neytendur sem eiga BABY-SAFE PRO stól sem framleiddur var á tímabilinu 26. desember 2025 til 30. september 2026 eru hvattir til að kanna hvort þeirra stóll falli undir innköllunina. Framleiðsludagsetningu má finna á vörumerkingu á neðri hluta stólskeljarinnar. Hægt er að kanna hvort stóllinn falli undir innköllunina á http://www.baby-safe-check.com/ Ef stóllinn fellur undir innköllunina skal hætta notkun hennar strax og hafa samband við söluaðila.   Öryggi barna er forgangsmál hjá Britax Römer og fyrirtækið segist leggja áherslu á að veita fjölskyldum upplýsingar og aðstoð meðan á innköllunarferlinu stendur.