28. nóvember 2025

Innköllun á Jeep Hybrid bílum

28. nóvember 2025

Innköllun á Jeep Hybrid bílum

Bílar

Innköllun

Ísband hefur vakið athygli HMS á fyrirhugaðri innköllun á hybrid bifreiðum frá Jeep. Um er að ræða Jeep Wrangler árgerðir 2020-2025 og Jeep Grand Cherokee 2022-2026. Í einhverjum tilfellum geta rafhlöður ökutækjanna verið gallaðar og kviknað í þeim.

Ísband mun hringja í eigendur bifreiða sem á að innkalla.

HMS vill biðja þá sem eiga slíka bíla sem voru ekki fluttir inn af Ísband að hafa samband við umboðið til að athuga hvort slík innköllun hvíli á þeirra bíl.

Vöruheiti

Jeep Wrangler árgerðir 2020-2025 og Jeep Grand Cherokee 2022-2026.

Vörumerki

Jeep

Hver er hættan?

Í einhverjum tilfellum geta rafhlöður ökutækjanna verið gallaðar og kviknað í þeim.

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

Ísband mun hringja í eigendur bifreiða sem á að innkalla. Eigendur þeirra bifreiða sem voru ekki fluttir inn af Ísband eru beðnir um að hringja í Ísband í síma 590 2300 eða hafa samband í gegnum isband@isband.is

Söluaðilar

Ísband

Vörunúmer

Jeep Wrangler árgerðir 2020-2025
Jeep Grand Cherokee 2022-2026.

Deildu

Nýjar tilkynningar

Barnabílstóll

Innköllun

21. október 2026

Innköllun á BABY-SAFE PRO barnabílstólum frá Britax Römer

Britax Römer hefur ákveðið að innkalla ákveðna BABY-SAFE PRO barnabílstóla sem framleiddir voru frá 26. desember 2025 til 30. september 2026. Stólarnir hafa verið seldir bæði stakir og í setti með VARIO BASE 5Z ISOFIX-base. Stólarnir hafa meðal annars verið seldir hér á landi hjá Fífu. Ákvörðunin um innköllunina var tekin eftir að þýska óháða neytendaprófunarstofnunin Stiftung Warentest fann vandamál við prófun á stólnum þegar hann var festur á VARIO BASE 5Z í mest hallandi stöðu. Þá getur smellan á öryggisbeltinu losnað eða brotnað við framanákeyrslu, með þeim afleiðingum að barnið er ekki nægilega tryggilega fest í stólnum. Vandamálið kom ekki fram þegar stóllinn var í uppréttri stöðu á VARIO BASE 5Z eða þegar stóllinn var festur í bifreiðina með öryggisbelti. Við nánari skoðun og yfirferð hefur Britax Römer afmarkað innköllunina við BABY-SAFE PRO stóla þar sem smella öryggisbeltisins er úr tiltekinni framleiðslulotu. Neytendur sem eiga BABY-SAFE PRO stól sem framleiddur var á tímabilinu 26. desember 2025 til 30. september 2026 eru hvattir til að kanna hvort þeirra stóll falli undir innköllunina. Framleiðsludagsetningu má finna á vörumerkingu á neðri hluta stólskeljarinnar. Hægt er að kanna hvort stóllinn falli undir innköllunina á http://www.baby-safe-check.com/ Ef stóllinn fellur undir innköllunina skal hætta notkun hennar strax og hafa samband við söluaðila.   Öryggi barna er forgangsmál hjá Britax Römer og fyrirtækið segist leggja áherslu á að veita fjölskyldum upplýsingar og aðstoð meðan á innköllunarferlinu stendur.