4. júní 2025

Innköllun á ungbarnarólu frá KREA/Happy Summer

4. júní 2025

Innköllun á ungbarnarólu frá KREA/Happy Summer

Leikföng

Barnavörur

Innköllun

Vakin er athygli á innköllun á ungbarnarólu, Baby Swing Black frá KREA/Happy Summer. Barnarólan uppfyllir ekki þær kröfur sem gerðar eru til slíkra róla. Helstu áhættur sem fylgja notkun hennar eru að barn getur fest höfuð og háls á milli hluta rólunnar. Þá er á rólunni smáhlutur sem getur brotnað af og valdið köfnunarhættu. Einnig voru önnur atriði sem stóðust ekki leikfangastaðal EN 71-1 og EN 71-8. Rólan var seld í Kids Coolshop.

Viðskiptavinum er bent á að hætta notkun rólunnar strax, skila rólunni í Kids Coolshop og fá fulla endurgreiðslu.

Vöruheiti

Baby Swing Black

Vörumerki

KREA / Happy Summer

Hver er hættan?

Helstu áhættur sem fylgja notkun rólunnar eru að barn getur fest höfuð og háls á milli hluta rólunnar. Á rólunni er einnig smáhlutur sem getur brotnað af og valdið köfnunarhættu.

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

Hætta notkun rólunnar þegar í stað og skila rólunni í Kids Coolshop gegn fullri endurgreiðslu.

Söluaðilar

Kids Coolshop

Er varan CE-merkt?

Vörunúmer

AMO2311

Deildu

Nýjar tilkynningar