
Barnavörur
Tilkynning
HMS vill vekja athygli á því að barnakerrur frá Easywalker, sem nefnast Jackey XL, hafa verið teknar af markaði í Evrópu. Kerran er ætluð börnum frá fæðingu og upp í 22 kg.
Ástæða innköllunarinnar er sú að kerran reynist ekki nægilega stöðug og getur því oltið. Það getur haft áhrif á öryggi barns og skapað slysahættu.
HMS hefur kannað markaðinn á Íslandi og getur ekki séð að kerran sé seld hér á landi. Hún hefur þó verið seld erlendis og gæti hafa komið til landsins í gegnum netverslun. Meðal annars hafa Amazon, Babyshop og fleiri erlendar vefsíðu selt kerruna.
Ef þú átt svona kerru er mikilvægt að hætta notkun hennar tafarlaust.
Deildu











