6/6/2025

Orkumerkingar varmadælna

Á dögunum lét HMS framkvæma eftirlit með orkumerkingum varmadælna. Farið var í fjórar verslanir sem selja slík tæki. Staðirnir sem voru heimsóttir voru Gastec, Lofttækni, Kælitækni og Verklagnir. Könnunin leiddi í ljós að engin varmadæla sem var til sýnis var með þær orkumerkingar sem krafist er. Orkumerkingar hjálpa neytendum við val á hentugum varmadælum.

Heiti stofnunar

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)

Gagnlegar upplýsingar fyrir neytendur

Á Íslandi búa margir í byggðarlögum þar sem hefðbundin hitaveita er ekki aðgengileg eða kostnaðarsöm í framkvæmd. Fyrir þessi svæði bjóða varmadælur upp á hagkvæma, umhverfisvæna og sjálfbæra lausn til húshitunar. Þær henta sérstaklega vel á köldum svæðum – og eru lykilþáttur í orkuskiptum þjóðarinnar.

Varmadælur virka með því að taka varma úr umhverfinu – úr lofti, jörðu eða vatni – og nýta hann til að hita húsnæði. Fyrir hverja kílówattstund sem varmadælan notar, getur það skilað margföldum varma á móti. Þetta gerir varmadælur mun hagkvæmari en hefðbundin rafhitunarkerfi eða olíukynding

Á svæðum án hitaveitu, eins og víða á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austurlandi, geta varmadælur dregið verulega úr kostnaði heimila, minnkað raforkuþörf og dregið úr losun gróðurhúsalofttegunda. Nýjustu tækin virka jafnvel við mjög lágar hitastig – allt niður í -20°C – sem gerir þau vel aðlöguð íslenskum veðurskilyrðum.

Auk þess létta þær álagi af raforkukerfinu, sem skiptir máli í ljósi spár Landsnets um vaxandi eftirspurn og mögulegan orkuskort. Með aukinni notkun á varmadælum getum við mætt hluta af orkuþörfinni án þess að reisa nýjar virkjanir eða valda truflunum í kerfinu.

Varmadælur eru þannig ekki aðeins hagkvæmur kostur fyrir heimili – heldur einnig mikilvægt tæki í átt að orkusjálfbærni, minni losun og markmiðum Íslands í loftslagsmálum.

Deildu