13/3/2026

Árið 2025 var metár í tilkynningum um hættulegar vörur í Safety Gate

Árið 2025 var metár í tilkynningum um hættulegar vörur og voru að meðaltali um 100 tilkynningar um hættulegar vörur birtar í  Safety Gate gáttinni á viku. Þetta kemur fram í skýrslu sem Evrópusambandið gaf út á dögunum um tilkynningar í Safety Gate fyrir árið 2025. Safety Gate er sameiginleg evrópskt tilkynningagátt um hættulegar vörur.

Alls voru 4.671 tilkynningar um hættulegar vörur birtar í gáttinni á síðasta ári og 5.795 aðgerðir um framkvæmdir í kjölfarið á birtum tilkynningum skráðar. Í því samhengi er rétt að geta þess að ef eitt ríki sendir inn tilkynningu um hættulega vöru, þurfa önnur ríki innan Evrópu að grípa til viðeigandi ráðstafana innan síns yfirráðasvæðis ef sama vara fyrirfinnst þar. Markmið með upplýsingagáttinni er að tryggja skilvirkt upplýsingaflæði milli ríkja í Evrópu um hættulegar vörur á markaði og stuðla að skjótum, samhæfðum viðbrögðum markaðseftirlitsyfirvalda, til þess að koma megi í veg fyrir eða takmarka að vörur sem metnar hafa verið hættulegar haldi áfram í dreifingu eða notkun á EES-svæðinu.

Snyrtivörur og leikföng efst á lista yfir hættulegar vörur

Lang flestar tilkynningar í Safety Gate árið 2025 voru vegna snyrtivara, líkt og árið 2024. Þar á eftir komu tilkynningar vegna leikfanga, rafmagnsvara og raftækja. Efnaáhætta var sá áhættuflokkur sem var algengastur í tilkynningum um hættulegar vörur. Í skýrslunni segir að það endurspegli jafnframt mikinn fjölda tilkynninga um snyrtivörur. Stór hluti efnaáhættu tengdist efninu BMHCA (Lilial), sem hefur verið bannað í ESB frá því í mars 2022 vegna hættu á skaðlegra áhrifa á húð og krabbameini. Efnahætta tengdist einnig tilkynningum um vörur í öðrum flokkum. Það átti t.d. við um þalöt í plastleikföngum og efni á borð við blý og SCCP efnis í rafbúnaði og köplum. Þessi efni geta haft skaðleg áhrif bæði á heilsu og umhverfi.

Þótt flestar tilkynningar um hættulegar vörur hafi verið vegna snyrtivara þá voru flestar skráðar aðgerðir í kjölfar birtra tilkynninga um vörur sem fundust í fleiri en einu landi tengdar innköllunum á ökutækjum. Það bendir til þess að innköllunarferli í þeim geira séu vel skipulögð og að sömu tegundir ökutækja séu seldar víða innan Evrópu.

Notkun Safety Gate á Íslandi

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun er tengiliður fyrir Safety Gate á Íslandi og annast samskipti við stofnanir innan Evrópu og önnur EES-ríki vegna tilkynninga og viðbragða. 

Íslensk stjórnvöld sendu fimm tilkynningar um hættulegar vörur til birtingar í Safety Gate og fylgdu eftir 24 málum vegna annarra birtra tilkynninga.

Hér má sjá yfirlit yfir tilkynningar í Safety Gate í öllum ríkjum Evrópu.

Vöruvaktin – íslensk upplýsingasíða fyrir neytendur

Sérstök athygli er vakin á því að ef stjórnvöld telja að tilkynningar í Safety Gate taki til vara sem eru í dreifingu hérlendis birta þau tilkynningar vegna þeirra á Vöruvaktinni. Vöruvaktin er upplýsingasíða sem er tileinkuð tilkynningum og fræðslu um vöruöryggi fyrir neytendur hérlendis. Að henni standa þau stjórnvöld sem sinna markaðseftirliti með vörum á Íslandi. Í því samhengi er rétt að hafa í huga að vel upplýstir neytendur gegna lykilhlutverki við að stuðla að öruggum markaði með því að senda inn ábendingar til  markaðseftirlitsstjórnvalda ef grunur er um hættulega vörur eða vörur í umferð sem uppfylla ekki kröfur. Hægt er að senda inn slíkar ábendingar í gegnum Vöruvaktina.

Deildu

Nýjar fréttir og fræðsla

Barnavörur

20/1/2026

Skoðun á öryggi barnabílstóla á Evrópumarkaði

Ábending HMS vegna 360° snúningsstóla Í tengslum við þessa athugun vill HMS jafnframt vekja athygli á barnabílstólum með 360° snúningsbúnaði, sem hafa orðið sífellt algengari á markaði. Slíkur búnaður er fyrst og fremst hannaður með sjónarmið um auðveldari umgengni foreldra við bílstóla í huga , en  hönnun þeirra er um leið flóknari með snúningskerfum og læsingum. Reglugerð R129 gerir ekki kröfur um prófanir á snúningsbúnaði eða læsingum barnabílstóla t.d. hvað varðar endingu eða slit við notkun. Í öðrum vöruflokkum er algengt að gerðar séu kröfur um að læsingar þoli tiltekinn fjölda notkunarlota (til dæmis 10.000 opnanir), en slíkar kröfur eru ekki gerðar varðandi snúningsbúnað eða læsingar á slíkum kerfum barnabílstóla. Snúningsbúnaðurinn sjálfur er því ekki sérstaklega prófaður samkvæmt reglugerðinni og engin sérstök prófun liggur fyrir sem metur langtímaþol hans. Ef foreldrar eða aðrir umönnunaraðilar barna velja stóla með snúningsbúnaði er af þessum sökum sérstaklega mikilvægt að þeir gangi úr skugga um að snúningsbúnaður og læsingar séu í lagi og að barnabílstóllinn sé ávallt tryggilega læstur í réttri akstursstöðu áður en lagt er af stað út í umferðina. Ef snúningsbúnaðurinn er mjög stífur getur það stafað af óhreinindum, svo sem sandi, að stóllinn sé ekki rétt settur í, að laga þurfi ISOFIX festinguna eða að búnaðurinn sé einfaldlega orðinn slitinn eftir mikla notkun. Smá mótstaða getur verið eðlileg en ef hún er mikil þarf að skoða búnaðinn betur.   Ef þú ert óviss um að búnaðurinn virki rétt hvetur HMS þig til þess að hafa samband við söluaðila viðkomandi bílstóls.   Bakvísandi og framvísandi Mikilvægt er að foreldrar og aðrir umönnunaraðilar barna geri sér grein fyrir því að margir barnabílstólar sem eru bakvísandi í upphafi eru ekki ætlaðir til bakvísandi notkunar allan notkunartímann. Þegar barn hefur náð tiltekinni hæð og er að minnsta kosti 15 mánaða gamalt, getur verið nauðsynlegt að snúa stólnum í framvísandi stöðu, allt eftir leiðbeiningum framleiðanda fyrir hlutaðeigandi stól. Mikilvægt er að foreldrar og forráðamenn kynni sér vel hvaða barnabílstól þeir nota, þar sem sumir stólar eru eingöngu hannaðir til bakvísandi notkunar upp að tiltekinni hæð eða þyngd. Þegar þeim mörkum er náð er stólinn ekki lengur öruggur til notkunar bakvísandi og þá þarf annaðhvort að snúa honum í framvísandi stöðu eða skipta um barnabílstól. Þessar upplýsingar koma fram í notkunarleiðbeiningum og hvetur HMS eindregið til þess að þeim sé fylgt að öllu leyti. HMS hvetur þig til að skoða vel hvernig bílstól þú ert með, sumir stólar hætta að virka sem bakvísandi eftir að barn nær þeirri hámarkshæð eða þyngd sem framleiðandi tilgreinir. Eftir það er ekki hægt að nota þá í bakvísandi stöðu og þá þarf annað hvort að snúa þeim svo þeir séu framvísandi eða skipta um stól. Öryggi barna er ávallt í forgangi hjá HMS og mun stofnunin áfram fylgjast með markaðinum og grípa til viðeigandi aðgerða þegar þörf krefur.

Nánar