20/5/2026

Um helmingur skoðaðra sólgleraugna uppfyllti ekki kröfur

HMS skoðaði nýlega 105 pör af sólgleraugum sem seld eru á Íslandi. Markmiðið var að kanna hvort gleraugun væru rétt merkt og hvort nauðsynlegar upplýsingar fylgdu vörunum.

Niðurstöðurnar sýndu að:

  • 51 vara voru í lagi
  • 54 vörur voru ekki í lagi

Það þýðir að rúmlega helmingur varanna uppfyllti ekki kröfur. Helstu athugasemdir sneru að vöntun á merkingum, upplýsingum um síuflokka og nauðsynlegum aðvörunum. Síuflokkar segja til um hversu dökk sólgleraugun eru og hversu mikla birtu þau draga úr. Sérstaklega er mikilvægt að neytendur þekki síuflokkinn, þar sem sólgleraugu í flokki CAT 4 eru mjög dökk og henta ekki til aksturs.

HMS hvetur neytendur til að kanna merkingar og fylgigögn áður en sólgleraugu eru keypt. Framleiðendur, innflytjendur og söluaðilar bera ábyrgð á því að vörur séu rétt merktar og að nauðsynlegar upplýsingar fylgi þeim áður en þær fara í sölu.

Að lokum þakkar HMS starfsfólki verslana fyrir góðar móttökur meðan á eftirlitinu stóð.

Gagnlegar upplýsingar fyrir neytendur

Áður en sólgleraugu eru keypt er gott að kanna eftirfarandi:

  • Eru sólgleraugun CE merkt?
    CE merking gefur til kynna að varan eigi að uppfylla kröfur sem gilda á Evrópska efnahagssvæðinu.
  • Kemur fram hvaða síuflokkur er á gleraugunum?
    Síuflokkur, oft merktur sem CAT 1–4, segir til um hversu dökk glerin eru og hversu mikla birtu þau draga úr. Flokkarnir eru frá CAT 1 upp í CAT 4. Algengast er að sólgleraugu séu í flokki 2 eða 3 en flokkur 4 hentar ekki við akstur. Ef gleraugu í CAT 4 eru ekki merkt með skýrri aðvörun getur það skapað hættu fyrir notendur.
  • Er UV vörn tilgreind?
    UV vörn hjálpar til við að vernda augun gegn skaðlegum útfjólubláum geislum sólar.
  • Eru aðvaranir til staðar?
    Þetta á sérstaklega við um mjög dökk sólgleraugu. Gleraugu í CAT 4 henta ekki við akstur.
  • Fylgja leiðbeiningar eða upplýsingar með vörunni?
    Neytendur eiga að geta séð hvernig nota á vöruna á öruggan hátt.
  • Ekki treysta eingöngu á útlitið.
    Sólgleraugu geta litið vel út án þess að nauðsynlegar merkingar og upplýsingar séu í lagi.

Deildu