Hleðslutæki og hleðslusnúrur fyrir síma
Mikilvægt er að velja hleðslutæki og hleðslusnúrur sem henta símanum og nota búnaðinn samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda. Best er að nota hleðslutæki og snúru sem fylgdu símanum eða sambærilegan búnað sem er sérstaklega ætlaður viðkomandi tæki. Rangur eða lélegur hleðslubúnaður getur valdið hægri hleðslu, ofhitnun, skemmdum á tæki og í versta falli aukinni brunahættu.
Veldu líka hleðslutæki sem er CE-merkt. CE-merkið merkir að framleiðandi lýsir því yfir að varan uppfylli viðeigandi evrópskar kröfur um öryggi, heilsu og umhverfisvernd. Það er þó ekki gæðastimpill eitt og sér, svo áfram skiptir máli að kaupa frá traustum aðila og velja hleðslutæki sem er rétt fyrir tækið.

Hvað ber að varast
Til að draga úr brunahættu við hleðslu farsíma:
- Ekki hlaða síma þegar allir eru sofandi eða enginn er til staðar.
- Hafðu símann og hleðslubúnað á flötu, óbrennanlegu undirlagi meðan á hleðslu stendur.
- Ekki hafa brennanleg efni nálægt, svo sem sængurföt, púða, sófa eða gardínur.
- Ekki breiða yfir síma, hleðslutæki eða snúru meðan hlaðið er.
- Ekki nota skemmdan hleðslubúnað, til dæmis rifna snúru, brotið tengi eða hleðslutæki sem hitnar óeðlilega mikið.
- Hættu notkun strax ef sími, hleðslutæki eða snúra ofhitnar, gefur frá sér óvenjulega lykt eða sýnir önnur merki um bilun.
- Gott er að hlaða í rými þar sem reykskynjari er til staðar.
Gagnlegar upplýsingar fyrir neytendur
Við kaup á hleðslutæki fyrir síma þarf að passa að
- hleðslutækið sé CE-merkt
- það sé ætlað símanum sem á að hlaða
- það henti tækinu með tilliti til spennu (V), straums (A) og afls (W)
- snúran passi við tækið, til dæmis USB-C eða Lightning
- snúran sé ætluð til hleðslu en ekki eingöngu gagnaflutnings
- búnaðurinn sé frá traustum framleiðanda eða söluaðila
- velja vottaðan búnað þar sem það á við
- fylgja alltaf leiðbeiningum framleiðanda
Deildu





