Um þriðjungur skíða og reiðhjólahjálma uppfylltu ekki kröfur í úttekt HMS
HMS hefur lokið athugun á skíða- og reiðhjólahjálmum. Niðurstöður sýna að 36% þeirra hjálma sem skoðaðir voru uppfylltu ekki gildandi kröfur um öryggi, merkingar og upplýsingagjöf.
Samtals voru 44 hjálmar teknir til skoðunar. Af þeim reyndust 16 ekki standast kröfur. Skíðahjálmar komu almennt vel út úr athuguninni, en tvo af 17 þurfti að skoða nánar. Um helmingur þeirra 27 reiðhjólahjálma sem skoðaðir voru uppfylltu kröfur. Allir þeir aðilar sem tóku þátt í úttektinni brugðust strax við og fjarlægðu úr sölu þá hjálma sem ekki stóðust kröfur.
HMS leggur áherslu á að hjálmar séu rétt valdir og passi vel. Mælt er með að máta hjálm áður en hann er keyptur, þegar þess er kostur. Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að framleiðendur og seljendur fylgi reglum og að neytendur séu vel upplýstir við val á hlífðarbúnaði.

Hvað ber að varast
Algengasta frávikið var að hjálmar voru of gamlir. Það er hægt að sjá framleiðsluár og mánuð í hjálminum. Framleiðandi gefur upp líftíma í leiðbeiningum. Yfirleitt er líftími þrjú til fimm ár frá framleiðsludegi. Neytendur eru hvattir til að kynna sér líftíma hjálma og endurnýja þá þegar honum lýkur.
Önnur frávik vörðuðu einkum merkingar og fylgigögn. Í tíu tilvikum vantaði tilvísanir í viðeigandi reglugerðir eða merkingar voru ábótavant. Þá vantaði samræmisyfirlýsingu í fjórum tilvikum, en hún staðfestir að varan uppfylli allar viðeigandi reglur, staðla og lög sem gilda um hana.
Athugunin leiddi jafnframt í ljós annmarka á upplýsingagjöf í vefverslunum. Mikilvægt er að neytendur hafi aðgang að sömu upplýsingum við netkaup og í hefðbundnum verslunum, þar á meðal um stærð, CE-merkingu, framleiðanda, tegund og samræmisyfirlýsingu.
Gagnlegar upplýsingar fyrir neytendur
Neytendur eru hvattir til að
✔️ Athuga hvort hjálmurinn sé CE merktur
✔️ Athuga framleiðsludag
✔️ Tryggja að hjálmur passi vel
✔️ Staðfesta að reiðhjólahjálmar uppfylla staðall EN 1078 og/eða EN 1080 fyrir ung börn
✔️ Staðfesta að skíðahjálmar uppfylli staðall EN 1077
✔️ Kynna sér líftíma hjálma, algengt er að líftími þeirra er 3-5 ár frá framleiðsludegi en það er mismunandi eftir framleiðendum.
✔️ Mikilvægt er að kynna sér leiðbeiningar framleiðenda
Deildu





