26/3/2026

Orkumerkingar og viðgerðarhæfi snjallsíma og spjaldtölva

Evrópusambandið hefur innleitt nýjar reglur um orkumerkingar fyrir snjallsíma og spjaldtölvur með það að markmiði að veita neytendum skýrari og gagnlegri upplýsingar við kaup. Með nýju merkingunum verður auðveldara að bera saman tæki og meta ekki aðeins orkunýtni heldur einnig endingu og viðgerðarmöguleika.

Samkvæmt reglunum þurfa snjallsímar og spjaldtölvur að bera upplýsingar um orkunýtni, endingartíma rafhlöðu og mótstöðu gegn ryki, vatni og hnjaski vegna falls. Með þessu fá neytendur betri yfirsýn yfir helstu eiginleika tækjanna áður en ákvörðun er tekin um kaup.

Nýju orkumerkingarnar eru því ekki aðeins ætlaðar til að upplýsa um orkunotkun, heldur einnig til að varpa ljósi á gæði, endingu og viðgerðarhæfi. Þær eru hluti af stærri aðgerðum Evrópusambandsins til að draga úr raftækjaúrgangi, efla hringrásarhagkerfi og stuðla að sjálfbærari neyslu í Evrópu.

Gagnlegar upplýsingar fyrir neytendur

Ein stærsta nýjungin er að í fyrsta sinn verður skylt að birta sérstaka viðgerðarhæfiflokk á merkimiða fyrir þessar vörur. Viðgerðarhæfi verður gefin á bilinu A til E, þar sem A táknar að vara sé mjög viðgerðavæn en E að hún sé síður hentug til viðgerða. Þessi upplýsingagjöf á að hjálpa neytendum að átta sig betur á því hversu auðvelt sé að gera við tækið og lengja þar með líftíma þess.

Neytendur ættu kanna m.a. eftirfarandi atriði fyrir kaup á farsímum og spjaldtölvum

  • Orkunýtniflokkur– segir til um orkunýtni símans.
  • Rafhlöðuendingu – hversu lengi síminn endist á einni hleðslu.
  • Endingareiginleika – til dæmis þol gegn falli, vatni og ryki.
  • Viðgerðarhæfi – hversu auðvelt er að gera við símann og fá varahluti.
  • Líftíma rafhlöðu – hversu margar hleðslulotur rafhlaðan þolir áður en afköst skerðast
  • CE merking- Farsímar og spjaldtölvur eiga að vera CE merktar vörur

Deildu

Nýjar fréttir og fræðsla

Barnavörur

20/1/2026

Skoðun á öryggi barnabílstóla á Evrópumarkaði

Ábending HMS vegna 360° snúningsstóla Í tengslum við þessa athugun vill HMS jafnframt vekja athygli á barnabílstólum með 360° snúningsbúnaði, sem hafa orðið sífellt algengari á markaði. Slíkur búnaður er fyrst og fremst hannaður með sjónarmið um auðveldari umgengni foreldra við bílstóla í huga , en  hönnun þeirra er um leið flóknari með snúningskerfum og læsingum. Reglugerð R129 gerir ekki kröfur um prófanir á snúningsbúnaði eða læsingum barnabílstóla t.d. hvað varðar endingu eða slit við notkun. Í öðrum vöruflokkum er algengt að gerðar séu kröfur um að læsingar þoli tiltekinn fjölda notkunarlota (til dæmis 10.000 opnanir), en slíkar kröfur eru ekki gerðar varðandi snúningsbúnað eða læsingar á slíkum kerfum barnabílstóla. Snúningsbúnaðurinn sjálfur er því ekki sérstaklega prófaður samkvæmt reglugerðinni og engin sérstök prófun liggur fyrir sem metur langtímaþol hans. Ef foreldrar eða aðrir umönnunaraðilar barna velja stóla með snúningsbúnaði er af þessum sökum sérstaklega mikilvægt að þeir gangi úr skugga um að snúningsbúnaður og læsingar séu í lagi og að barnabílstóllinn sé ávallt tryggilega læstur í réttri akstursstöðu áður en lagt er af stað út í umferðina. Ef snúningsbúnaðurinn er mjög stífur getur það stafað af óhreinindum, svo sem sandi, að stóllinn sé ekki rétt settur í, að laga þurfi ISOFIX festinguna eða að búnaðurinn sé einfaldlega orðinn slitinn eftir mikla notkun. Smá mótstaða getur verið eðlileg en ef hún er mikil þarf að skoða búnaðinn betur.   Ef þú ert óviss um að búnaðurinn virki rétt hvetur HMS þig til þess að hafa samband við söluaðila viðkomandi bílstóls.   Bakvísandi og framvísandi Mikilvægt er að foreldrar og aðrir umönnunaraðilar barna geri sér grein fyrir því að margir barnabílstólar sem eru bakvísandi í upphafi eru ekki ætlaðir til bakvísandi notkunar allan notkunartímann. Þegar barn hefur náð tiltekinni hæð og er að minnsta kosti 15 mánaða gamalt, getur verið nauðsynlegt að snúa stólnum í framvísandi stöðu, allt eftir leiðbeiningum framleiðanda fyrir hlutaðeigandi stól. Mikilvægt er að foreldrar og forráðamenn kynni sér vel hvaða barnabílstól þeir nota, þar sem sumir stólar eru eingöngu hannaðir til bakvísandi notkunar upp að tiltekinni hæð eða þyngd. Þegar þeim mörkum er náð er stólinn ekki lengur öruggur til notkunar bakvísandi og þá þarf annaðhvort að snúa honum í framvísandi stöðu eða skipta um barnabílstól. Þessar upplýsingar koma fram í notkunarleiðbeiningum og hvetur HMS eindregið til þess að þeim sé fylgt að öllu leyti. HMS hvetur þig til að skoða vel hvernig bílstól þú ert með, sumir stólar hætta að virka sem bakvísandi eftir að barn nær þeirri hámarkshæð eða þyngd sem framleiðandi tilgreinir. Eftir það er ekki hægt að nota þá í bakvísandi stöðu og þá þarf annað hvort að snúa þeim svo þeir séu framvísandi eða skipta um stól. Öryggi barna er ávallt í forgangi hjá HMS og mun stofnunin áfram fylgjast með markaðinum og grípa til viðeigandi aðgerða þegar þörf krefur.

Nánar