30/3/2026

Nýjar kröfur ESB um visthönnun fyrir farsíma og spjaldtölvur 

Nýjar reglur Evrópusambandsins um visthönnun fyrir farsíma, þráðlausa síma og spjaldtölvur eiga að stuðla að endingarbetri og viðgerðavænni vörum. Nýju visthönnunarkröfurnar eru liður í víðtækari stefnu Evrópusambandsins um að efla hringrásarhagkerfi, minnka raftækjaúrgang og stuðla að því að vörur séu hannaðar með lengri notkun í huga.

Gagnlegar upplýsingar fyrir neytendur

Með þessum breytingum eru gerðar skýrari kröfur til rafhlaðna, varnir gegn fallskemmdum, rispum, ryki og vatni. Rafhlöður þurfa að þola að minnsta kosti 800 hleðslulotur og halda eftir það að lágmarki 80% af upphaflegri afkastagetu sinni. Slíkar kröfur eiga að stuðla að því að tæki endist lengur án þess að afköst rafhlöðu rýrni verulega á skömmum tíma.

Reglurnar leggja jafnframt aukna áherslu á viðgerðarhæfni. Framleiðendum verður gert að útvega tiltekna varahluti innan 5–10 virkra daga og halda þeim tiltækum í að minnsta kosti sjö ár eftir að sala viðkomandi vörulínu lýkur á ESB-markaði. Þá er einnig gerð krafa um að notendur og viðgerðaraðilar hafi lengri aðgang að nauðsynlegum hugbúnaðaruppfærslum, meðal annars fyrir stýrikerfi, í að minnsta kosti fimm ár frá því að síðasta eintak viðkomandi gerðar er selt. Með þessum breytingum á regluverki er meðal annars leitast við að draga úr skemmdum í daglegri notkun og auka endingartíma varanna.

Markmiðið með þessum nýju kröfum er fyrst og fremst að lengja líftíma tækja, draga úr umhverfisárhifum og stuðla að sjáfbærari neyslu.

Deildu

Nýjar fréttir og fræðsla

Barnavörur

20/1/2026

Skoðun á öryggi barnabílstóla á Evrópumarkaði

Ábending HMS vegna 360° snúningsstóla Í tengslum við þessa athugun vill HMS jafnframt vekja athygli á barnabílstólum með 360° snúningsbúnaði, sem hafa orðið sífellt algengari á markaði. Slíkur búnaður er fyrst og fremst hannaður með sjónarmið um auðveldari umgengni foreldra við bílstóla í huga , en  hönnun þeirra er um leið flóknari með snúningskerfum og læsingum. Reglugerð R129 gerir ekki kröfur um prófanir á snúningsbúnaði eða læsingum barnabílstóla t.d. hvað varðar endingu eða slit við notkun. Í öðrum vöruflokkum er algengt að gerðar séu kröfur um að læsingar þoli tiltekinn fjölda notkunarlota (til dæmis 10.000 opnanir), en slíkar kröfur eru ekki gerðar varðandi snúningsbúnað eða læsingar á slíkum kerfum barnabílstóla. Snúningsbúnaðurinn sjálfur er því ekki sérstaklega prófaður samkvæmt reglugerðinni og engin sérstök prófun liggur fyrir sem metur langtímaþol hans. Ef foreldrar eða aðrir umönnunaraðilar barna velja stóla með snúningsbúnaði er af þessum sökum sérstaklega mikilvægt að þeir gangi úr skugga um að snúningsbúnaður og læsingar séu í lagi og að barnabílstóllinn sé ávallt tryggilega læstur í réttri akstursstöðu áður en lagt er af stað út í umferðina. Ef snúningsbúnaðurinn er mjög stífur getur það stafað af óhreinindum, svo sem sandi, að stóllinn sé ekki rétt settur í, að laga þurfi ISOFIX festinguna eða að búnaðurinn sé einfaldlega orðinn slitinn eftir mikla notkun. Smá mótstaða getur verið eðlileg en ef hún er mikil þarf að skoða búnaðinn betur.   Ef þú ert óviss um að búnaðurinn virki rétt hvetur HMS þig til þess að hafa samband við söluaðila viðkomandi bílstóls.   Bakvísandi og framvísandi Mikilvægt er að foreldrar og aðrir umönnunaraðilar barna geri sér grein fyrir því að margir barnabílstólar sem eru bakvísandi í upphafi eru ekki ætlaðir til bakvísandi notkunar allan notkunartímann. Þegar barn hefur náð tiltekinni hæð og er að minnsta kosti 15 mánaða gamalt, getur verið nauðsynlegt að snúa stólnum í framvísandi stöðu, allt eftir leiðbeiningum framleiðanda fyrir hlutaðeigandi stól. Mikilvægt er að foreldrar og forráðamenn kynni sér vel hvaða barnabílstól þeir nota, þar sem sumir stólar eru eingöngu hannaðir til bakvísandi notkunar upp að tiltekinni hæð eða þyngd. Þegar þeim mörkum er náð er stólinn ekki lengur öruggur til notkunar bakvísandi og þá þarf annaðhvort að snúa honum í framvísandi stöðu eða skipta um barnabílstól. Þessar upplýsingar koma fram í notkunarleiðbeiningum og hvetur HMS eindregið til þess að þeim sé fylgt að öllu leyti. HMS hvetur þig til að skoða vel hvernig bílstól þú ert með, sumir stólar hætta að virka sem bakvísandi eftir að barn nær þeirri hámarkshæð eða þyngd sem framleiðandi tilgreinir. Eftir það er ekki hægt að nota þá í bakvísandi stöðu og þá þarf annað hvort að snúa þeim svo þeir séu framvísandi eða skipta um stól. Öryggi barna er ávallt í forgangi hjá HMS og mun stofnunin áfram fylgjast með markaðinum og grípa til viðeigandi aðgerða þegar þörf krefur.

Nánar