24/6/2026

Mæling á magni áfengis við sölu

Áfengi sem keypt er í umbúðum frá framleiðanda er ávallt merkt með því magni sem í umbúðunum er. Þetta á við um flöskur, dósir og plastpoka í pappakassa svo eitthvað sé nefnt.

Þegar verið er að selja áfengi á vínveitingastöðum þar sem það er ekki afgreitt í umbúðum frá framleiðandi þá þarf að nota aðrar aðferðir til að mæla magnið sem selt er. Hérlendis er dropin dýr og því best fyrir bæði kaupanda og seljanda að rétt magn sé afgreitt.

Sterkt áfengi er yfirleitt mælt með svokölluðum sjússamælum og er í dag heimilt að hafa sjússinn 2 cl. eða 3. cl. en það þarf að koma skýrt fram hvort er verið að selja. Bjór af krana á að selja í glösum sem eru merkt með því magni sem verið er að selja. Sama á við sölu á léttvíni í glösum, glasið á að vera merkt með magninu eða nota skal sérstakt viðmiðunarmál til að mæla vínið áður en því er helt í glasið. Mælt magn á að vera augljóst kaupanda.

Það sama gildir um allar þessar mæliaðferðir að mælibúnaðurinn á að vera CE-merktur og því framleiddur til að uppfylla nákvæmniskröfur. Með þessu á neytandinn að geta treyst því að verið er að selja honum það magn sem er auglýst og að rétt sé staðið að mælingu á því.

HMS fer með eftirlit með mælabúnaði og fer reglulega og skoðar hvernig staðið er að mælingu við sölu á áfengi. Það er þó eingöngu um úrtaks skoðanir að ræða.

Því miður koma upp tilvik þar sem ekki er rétt staðið að þessum málum. HMS hvetur því neytendur til að láta stofnunina vita ef þeir verða varir við að áfengi sé ekki mælt eða afgreitt með réttum hætti. Hægt er að senda ábendingu í gegnum Vöruvaktina.

Deildu