Vogir í daglegu lífi
Það er víða sem vogir koma við sögu í okkar daglegu lífi. Til gamans má nefna það að eitt að því fyrsta sem við flest upplifðum þegar við fæddumst var að við vorum látin á vog og vigtuð. Hvað er barnið þungt?
Vogir eru notaðar til margvíslegra nota og því mismiklar kröfur gerðar til gæða þeirra eftir notkunarsviði. Hérlendis eru gerðar sambærilegar kröfur til voga sem notaðar eru í viðskiptalegum tilgangi og almennt eru gerðar á evrópska efnahagsvæðinu. Nákvæmnin þarf að vera innan vissra marka og síðan þarf að fylgjast með því reglulega að vogin sé að vinna innan þeirra marka.
Þegar við förum út í búð að versla í matinn þá er í dag yfirleitt búið að vigta þær vörur sem við erum að kaupa annars staðar en í versluninni. Þær vogir sem notaðar eru til að staðfesta magn vörunnar sem við erum að kaupa eru yfirleitt prófaðar reglulega. Eins eru þær vogir sem við sjáum í verslunum prófaðar og löggiltar reglulega þar á meðal sjálfafgreiðslukassar í verslunum sem yfirleitt eru með tvær vogir. Eina sem við vigtum vöruna á og eins er tékkvog sem staðfestir að rétt vara hafi verið skönnuð eða viktuð.
Þegar þessar vogir eru prófaðar hérlendis er það gert af fyrirtækjum sem starfa í umboði HMS og hafa til þess faggildingu. Eftir prófun er vogin löggilt ef hún er innan þeirra marka sem miðað er við og settur er á hana miði sem sýnir hversu lengi sú löggilding gildir. Ef að komið er fram yfir gildistíma löggildingarinnar er í raun ólöglegt að nota þá vog til að stunda viðskipti með.
Næst þegar þú setur epli á vog í búðinni, notar sjálfsafgreiðslukassa eða sérð verð miðað við kílóverð, þá veistu að á bak við töluna er heilmikið eftirlit, nákvæmni og öryggi.

Deildu





