Innkallanir - ekki bíða og sjá
Húsnæðis- mannvirkja og skipulagsstofnun (HMS) vill árétta mikilvægi þess að neytendur bregðist tafarlaust við þegar vara er innkölluð.
Vara er ekki innkölluð nema hún sé talin hættuleg eða geti skapað hættu á slysum. Ef hægt er að bregðast við með vægari úrræðum, svo sem að stöðva sölu vörunnar, er það gert. Innköllun er því aðeins beitt þegar nauðsynlegt þykir að ná vörunni úr umferð eða tryggja að hún verði lagfærð.
HMS hvetur neytendur til að líta aldrei á innköllun sem formsatriði. Ef þú kemst að því að vara sem þú átt hefur verið innkölluð skaltu fylgja leiðbeiningum framleiðanda eða seljanda án tafar, skila vörunni, láta gera við hana eða farga henni ef það á við.

Þegar um barnavörur er að ræða geta afleiðingarnar verið sérstaklega alvarlegar. Ábyrgir framleiðendur grípa til innköllunar um leið og í ljós kemur að vara geti valdið barni skaða. Markmiðið er að koma í veg fyrir slys áður en þau verða.
Sama gildir um bíla. Bílar eru aðeins innkallaðir þegar öryggisgalli hefur komið í ljós sem getur skapað hættu fyrir ökumenn, farþega eða aðra vegfarendur. Viðgerðir vegna innköllunar eru framkvæmdar á kostnað framleiðanda og mikilvægt er að eigendur bregðist við sem fyrst.
Þótt aðeins hluti framleiddra eintaka sé hugsanlega gallaður breytir það ekki alvarleika málsins. Þegar vara er innkölluð er oft ekki hægt að sjá með berum augum hvort tiltekið eintak sé öruggt eða ekki. Þess vegna er mikilvægt að bregðast við öllum innköllunum samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda eða seljanda.
Spurningin er einföld: Er áhættan þess virði þegar öryggi þitt eða barna þinna er í húfi?
Að bíða og sjá getur haft alvarlegar afleiðingar. Enginn ætti að þurfa að upplifa slys sem hefði verið hægt að koma í veg fyrir með því að bregðast við innköllun í tæka tíð.
Deildu





