Láttu sjá þig! Endurskin skiptir miklu máli
Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) hvetur alla vegfarendur til að nota endurskinsmerki nú þegar dagarnir styttast og skólarnir hafa byrjað. Börn eru sérstaklega viðkvæmur hópur í umferðinni og rétt notkun endurskinsmerkja getur skilið á milli lífs og dauða.
HMS hvetur fólk til að skoða vel merkingar á vörunni eða umbúðum.
Endurskinsmerki eiga að vera CE-merkt og með staðalsnúmerinu EN 17353. Slík merking táknar að framleiðandinn hafi látið prófa vöruna og staðfesti það öryggi sem ætlast er til.

Heiti stofnunar
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)
Ljóst er að ekki er hægt að meta hvort endurskinsmerki uppfylli öryggiskröfur með því einu að horfa á þau. Þess vegna hvílir rík skylda á framleiðendum, innflytjendum, dreifingaraðilum og söluaðilum að tryggja að merkin uppfylli allar öryggiskröfur.
Því hvetur HMS fólk að skoða vel upplýsingarnar sem gefnar eru á merkinu, umbúðum eða upplýsingablaði sem fylgir þeim. Það er mjög áríðandi að allar tilskildar merkingar og leiðbeiningar um notkun komi greinilega fram. Á merkingunum sést hvort að endurskinsmerkið hafi verið prófað og virki eins og það á að virka. Endurskinsmerki eiga að vera CE-merkt og uppfylla staðal EN 17353 eða ÍST EN 17535.
Á vef samgöngustofu er einnig hægt að finna gagnlegar upplýsingar um endurskinsmerki.
Gagnlegar upplýsingar fyrir neytendur
Endurskinsmerki sem ekki standast kröfur geta skapað falskt öryggi. Viðurkennd merki gera einstakling sýnilegan fyrir ökumann með lágu ljósin í allt að 125 metra fjarlægð. Merki sem ekki uppfylla staðalinn gera hann hins vegar ekki sýnilegan fyrr en í aðeins 30 metra fjarlægð, munurinn getur ráðið úrslitum.
Ábendingum um endurskinsmerki sem grunur leikur á að uppfylli ekki kröfur má koma á framfæri við HMS í gegnum heimasíðuna: www.voruvaktin.is
Deildu





