Skoðun á öryggi barnabílstóla á Evrópumarkaði
HMS tók þátt í evrópsku samstarfsverkefni með tíu öðrum ríkjum þar sem kannað var hvort barnabílstólar á markaði uppfylli kröfur reglugerðar UN ECE R129 sem felur í sér að barnabílstólar verða að standast ákveðin próf, t.d. árekstur við tiltekin hraða og skilgreindar höggaðstæður. Skoðaðir voru bæði barnabílstólar og festibúnaðar (base), alls voru 11 barnabílstólar og festibúnaður send til prófana.
Markmiðið var að sannreyna að stólar í sölu standist öryggiskröfur samkvæmt R129 reglugerðinni. Fyrstu niðurstöður sýna að barnabílstóllinn Kikid HD16 féll í álagsprófi, brotnaði við prófun og hefur því verið innkallaður og sala stöðvuð. Ekki er vitað hvort stóllinn hafi verið seldur á Íslandi, en hann hefur verið í sölu á Norðurlöndunum. HMS hvetur foreldra og forráðamenn til að hætta notkun hans tafarlaust ef hann reynist vera í notkun hér á landi.
Unnið er áfram að úrvinnslu niðurstaðna fyrir aðra barnabílstóla og verður upplýst um frekari innkallanir ef til þeirra kemur.

Gagnlegar upplýsingar fyrir neytendur
- Fylgdu alltaf leiðbeiningum framleiðanda
Leiðbeiningar um uppsetningu, notkun, hæðarmörk og akstursstefnu stólsins eru lykilatriði fyrir öryggi barnsins. - Tryggðu rétta uppsetningu og festingu
Barnabílstóll þarf að passa í bifreiðina, vera rétt festur og ávallt læstur í réttri akstursstöðu áður en ekið er af stað. - Hafðu sérstaka aðgát með 360° snúningsstóla
Snúningsbúnaður og læsingar eru ekki sérstaklega prófuð samkvæmt reglugerð. Athugaðu reglulega að búnaðurinn virki eðlilega og leitaðu til söluaðila ef vafi leikur á. - Veldu stól sem hentar barni þínu
Barnabílstóll á að vera rétt stilltur að stærð, henti aldri og hæð barnsins. - Kynntu þér bakvísandi og framvísandi notkun
Ekki eru allir stólar ætlaðir til bakvísandi notkunar allan notkunartímann. Þegar barnið nær tiltekinni hæð eða þyngd þarf annaðhvort að snúa stólnum eða skipta um hann. - ISOFIX er öruggur kostur þegar mögulegt er
Þegar val stendur milli festikerfa er mælt með ISOFIX-festingum fremur en stólum sem eingöngu eru festir með öryggisbelti.
Ábending HMS vegna 360° snúningsstóla
Í tengslum við þessa athugun vill HMS jafnframt vekja athygli á barnabílstólum með 360° snúningsbúnaði, sem hafa orðið sífellt algengari á markaði. Slíkur búnaður er fyrst og fremst hannaður með sjónarmið um auðveldari umgengni foreldra við bílstóla í huga , en hönnun þeirra er um leið flóknari með snúningskerfum og læsingum.
Reglugerð R129 gerir ekki kröfur um prófanir á snúningsbúnaði eða læsingum barnabílstóla t.d. hvað varðar endingu eða slit við notkun. Í öðrum vöruflokkum er algengt að gerðar séu kröfur um að læsingar þoli tiltekinn fjölda notkunarlota (til dæmis 10.000 opnanir), en slíkar kröfur eru ekki gerðar varðandi snúningsbúnað eða læsingar á slíkum kerfum barnabílstóla. Snúningsbúnaðurinn sjálfur er því ekki sérstaklega prófaður samkvæmt reglugerðinni og engin sérstök prófun liggur fyrir sem metur langtímaþol hans.
Ef foreldrar eða aðrir umönnunaraðilar barna velja stóla með snúningsbúnaði er af þessum sökum sérstaklega mikilvægt að þeir gangi úr skugga um að snúningsbúnaður og læsingar séu í lagi og að barnabílstóllinn sé ávallt tryggilega læstur í réttri akstursstöðu áður en lagt er af stað út í umferðina. Ef snúningsbúnaðurinn er mjög stífur getur það stafað af óhreinindum, svo sem sandi, að stóllinn sé ekki rétt settur í, að laga þurfi ISOFIX festinguna eða að búnaðurinn sé einfaldlega orðinn slitinn eftir mikla notkun. Smá mótstaða getur verið eðlileg en ef hún er mikil þarf að skoða búnaðinn betur.
Ef þú ert óviss um að búnaðurinn virki rétt hvetur HMS þig til þess að hafa samband við söluaðila viðkomandi bílstóls.
Bakvísandi og framvísandi
Mikilvægt er að foreldrar og aðrir umönnunaraðilar barna geri sér grein fyrir því að margir barnabílstólar sem eru bakvísandi í upphafi eru ekki ætlaðir til bakvísandi notkunar allan notkunartímann. Þegar barn hefur náð tiltekinni hæð og er að minnsta kosti 15 mánaða gamalt, getur verið nauðsynlegt að snúa stólnum í framvísandi stöðu, allt eftir leiðbeiningum framleiðanda fyrir hlutaðeigandi stól.
Mikilvægt er að foreldrar og forráðamenn kynni sér vel hvaða barnabílstól þeir nota, þar sem sumir stólar eru eingöngu hannaðir til bakvísandi notkunar upp að tiltekinni hæð eða þyngd. Þegar þeim mörkum er náð er stólinn ekki lengur öruggur til notkunar bakvísandi og þá þarf annaðhvort að snúa honum í framvísandi stöðu eða skipta um barnabílstól.
Þessar upplýsingar koma fram í notkunarleiðbeiningum og hvetur HMS eindregið til þess að þeim sé fylgt að öllu leyti.
HMS hvetur þig til að skoða vel hvernig bílstól þú ert með, sumir stólar hætta að virka sem bakvísandi eftir að barn nær þeirri hámarkshæð eða þyngd sem framleiðandi tilgreinir. Eftir það er ekki hægt að nota þá í bakvísandi stöðu og þá þarf annað hvort að snúa þeim svo þeir séu framvísandi eða skipta um stól.
Öryggi barna er ávallt í forgangi hjá HMS og mun stofnunin áfram fylgjast með markaðinum og grípa til viðeigandi aðgerða þegar þörf krefur.
Deildu





