24/2/2026

Ertu að kaupa glugga?

Ef þú ert að kaupa glugga sem á að fara í útvegg á Íslandi þarf hann ekki aðeins að vera CE-merktur, heldur einnig að uppfylla kröfur íslenskrar byggingarreglugerðar.

Þegar gluggar eru skoðaðir á að fylgja þeim skjal sem kallast yfirlýsing um nothæfi (Declaration of Performance – DoP ). Þar koma fram upplýsingar um eiginleika gluggans og í hvað hann hentar. Þetta hjálpar við að bera saman glugga frá mismunandi framleiðendum.

Einn mikilvægasti eiginleikinn fyrir íslenskar aðstæður er slagregnsþol, sem segir til um hversu vel glugginn þolir rigningu og vind. Gluggar sem eru notaðir í byggingar á Íslandi eiga að þola að minnsta kosti 1100 Pa í prófunarálag.

Það er mikilvægt að gera sér grein fyrir því að CE-merking segir ekki til um gæði gluggans, heldur tryggir að hann hafi verið prófaður á staðlaðan hátt og að upplýsingar um eiginleika hans séu til staðar.

Ef grunur vaknar um að gluggar á markaði uppfylli ekki lagakröfur á að tilkynna það til Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.

Geymsla og meðhöndlun glugga

Þegar gluggar eru afhentir á verkstað hafa þeir ákveðna eiginleika sem þarf að vernda.
Timburgluggar mega til dæmis ekki liggja óvarðir úti í marga daga eða vikur. Þeir þurfa að vera huldir, fá loftun og vera varðir gegn raka. Ef gluggi er settur í hús þar sem rakastig er of hátt getur það stytt endingartíma hans og valdið skemmdum á húsinu.

Gagnlegar upplýsingar fyrir neytendur

Þetta þarf að hafa í huga við kaup og ísetningu glugga

Tryggja skal að:

  • Glugginn sé CE-merktur
  • Yfirlýsing um nothæfi sé til staðar og sýni að glugginn uppfylli íslenskar kröfur
  • Glugginn hafi ekki blotnað eða dregið í sig raka í geymslu eða flutningi
  • Uppsetning sé samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda
  • Notaðar séu viðurkenndar aðferðir og efni við þéttingu gluggans við mannvirkið

Nánari upplýsingar um CE-merkingar byggingarvara má finna á hms.is/byggingarvorur

Deildu

Nýjar fréttir og fræðsla

Barnavörur

20/1/2026

Skoðun á öryggi barnabílstóla á Evrópumarkaði

Ábending HMS vegna 360° snúningsstóla Í tengslum við þessa athugun vill HMS jafnframt vekja athygli á barnabílstólum með 360° snúningsbúnaði, sem hafa orðið sífellt algengari á markaði. Slíkur búnaður er fyrst og fremst hannaður með sjónarmið um auðveldari umgengni foreldra við bílstóla í huga , en  hönnun þeirra er um leið flóknari með snúningskerfum og læsingum. Reglugerð R129 gerir ekki kröfur um prófanir á snúningsbúnaði eða læsingum barnabílstóla t.d. hvað varðar endingu eða slit við notkun. Í öðrum vöruflokkum er algengt að gerðar séu kröfur um að læsingar þoli tiltekinn fjölda notkunarlota (til dæmis 10.000 opnanir), en slíkar kröfur eru ekki gerðar varðandi snúningsbúnað eða læsingar á slíkum kerfum barnabílstóla. Snúningsbúnaðurinn sjálfur er því ekki sérstaklega prófaður samkvæmt reglugerðinni og engin sérstök prófun liggur fyrir sem metur langtímaþol hans. Ef foreldrar eða aðrir umönnunaraðilar barna velja stóla með snúningsbúnaði er af þessum sökum sérstaklega mikilvægt að þeir gangi úr skugga um að snúningsbúnaður og læsingar séu í lagi og að barnabílstóllinn sé ávallt tryggilega læstur í réttri akstursstöðu áður en lagt er af stað út í umferðina. Ef snúningsbúnaðurinn er mjög stífur getur það stafað af óhreinindum, svo sem sandi, að stóllinn sé ekki rétt settur í, að laga þurfi ISOFIX festinguna eða að búnaðurinn sé einfaldlega orðinn slitinn eftir mikla notkun. Smá mótstaða getur verið eðlileg en ef hún er mikil þarf að skoða búnaðinn betur.   Ef þú ert óviss um að búnaðurinn virki rétt hvetur HMS þig til þess að hafa samband við söluaðila viðkomandi bílstóls.   Bakvísandi og framvísandi Mikilvægt er að foreldrar og aðrir umönnunaraðilar barna geri sér grein fyrir því að margir barnabílstólar sem eru bakvísandi í upphafi eru ekki ætlaðir til bakvísandi notkunar allan notkunartímann. Þegar barn hefur náð tiltekinni hæð og er að minnsta kosti 15 mánaða gamalt, getur verið nauðsynlegt að snúa stólnum í framvísandi stöðu, allt eftir leiðbeiningum framleiðanda fyrir hlutaðeigandi stól. Mikilvægt er að foreldrar og forráðamenn kynni sér vel hvaða barnabílstól þeir nota, þar sem sumir stólar eru eingöngu hannaðir til bakvísandi notkunar upp að tiltekinni hæð eða þyngd. Þegar þeim mörkum er náð er stólinn ekki lengur öruggur til notkunar bakvísandi og þá þarf annaðhvort að snúa honum í framvísandi stöðu eða skipta um barnabílstól. Þessar upplýsingar koma fram í notkunarleiðbeiningum og hvetur HMS eindregið til þess að þeim sé fylgt að öllu leyti. HMS hvetur þig til að skoða vel hvernig bílstól þú ert með, sumir stólar hætta að virka sem bakvísandi eftir að barn nær þeirri hámarkshæð eða þyngd sem framleiðandi tilgreinir. Eftir það er ekki hægt að nota þá í bakvísandi stöðu og þá þarf annað hvort að snúa þeim svo þeir séu framvísandi eða skipta um stól. Öryggi barna er ávallt í forgangi hjá HMS og mun stofnunin áfram fylgjast með markaðinum og grípa til viðeigandi aðgerða þegar þörf krefur.

Nánar