Kaup á farsímum – mun tækið virka að fullu á Íslandi?
Fjarskiptastofa vill vekja athygli almennings á því að á Evrópumarkaði og jafnvel víðar eru í umferð farsímar með stuðning við 4G sem geta sinnt hefðbundnum símtölum, en virka ekki að fullu í öllum farsímanetum, þar á meðal hvað varðar aðgang að neyðarnúmerinu 112.
Eftir lokun 2G og 3G farsímakerfa á Íslandi getur í sumum tilvikum komið upp sú staða að farsímar virki ekki eins og áður vegna þess að þá skortir fulla samhæfni við 4G og 5G farsímanet fjarskiptafyrirtækjanna hér á landi.
Framleiðendur farsíma stýra því hvaða farsímar eru samhæfðir í tilteknum löndum og hverjir ekki og getur t.d. stærð sölumarkaðar og sölumöguleikar farsímatækja haft áhrif á frameiðendur þegar þeir ákveða að gera síma samhæfða í tilteknu landi.
Ósamhæfni farsíma getur verið mismunandi eftir fjarskiptafyrirtækjum og gerðum farsíma, en ósamhæfni getur leitt til þess að tækið nýtist ekki að fullu og nái t.d. ekki sambandi við 112.

Gagnlegar upplýsingar fyrir neytendur
Almennt er það þannig að innflutningsaðilar og söluaðilar farsíma hér á landi bera ábyrgð á því að veittar séu skýrar og réttar upplýsingar um mögulegar takmarkanir á notkun þeirra farsíma sem þeir flytja inn og selja, þar á meðal ef farsími:
- virkar ekki í öllum íslenskum farsímanetum, eða
- getur ekki tryggt aðgang að neyðarnúmerinu 112
Vanræksla á slíkri upplýsingagjöf getur falið í sér ábyrgð ef tækið virkar ekki eins og það var markaðssett og kynnt.
Almenningur er því hvattur til við kaup á farsímum hér á landi að óska eftir upplýsingum um það hvort farsímarnir séu að fullu samhæfðir fyrir Ísland.
Þessu til viðbótar bendir Fjarskiptastofa á að farsímar keyptir erlendis gætu hafa verið auglýstir að fullu samhæfðir 4G eða 5G kerfum í viðkomandi landi. Það þarf hins vegar ekki að þýða að þeir séu samhæfðir við íslensk farsímakerfi.
Deildu





