Íslendingar hafa lengi flutt inn bandarísk ökutæki til notkunar hérlendis og er mat sumra að þessir bílar séu aflmeiri og flottari en þeir sem eru seldir í Evrópu. Slíkur innflutningur er hluti af svokölluðum gráum markaði því framleiðandi markaðssetti ökutækin ekki sjálfur á evrópskum markaði og lögleg ökutæki eru því boðin fram í gegnum óformlega aðila.
Vegna þess geta ýmis vandræði fylgt þessum ökutækjum ef upp kæmi sú staða að þyrfti að innkalla þau sem eigendur sjá ekki fyrir. Þá hafa sumir keypt notuð ökutæki án þess að vita um uppruna þeirra. Grár innflutningur er ekki ólöglegur en HMS vill miðla upplýsingum til ökutækjaeigenda um áhættur sem geta fylgt slíkum innflutningi og því að eiga slíka bíla.
Hvernig virkar innköllun?
Þegar í ljós kemur galli í ökutæki sem getur haft áhrif á öryggi ökumanns, farþega eða annarra í umferðinni gefur framleiðandi út innköllun og býður eigendum að fá viðgerð eða úrbætur framkvæmdar þeim að kostnaðarlausu. Fyrir ökutæki sem ætluð eru á evrópskan markað lætur framleiðandi umboð vita sem hefur samband við eiganda og gerir við bílinn. HMS er svo tilbúið að grípa inn í ef heimtur eru slæmar eða umboð vanræki skyldur sínar.
En hvað með ökutæki á gráum markaði?
Fyrir ökutæki sem upphaflega voru framleidd fyrir bandarískan markað eða aðra markaði utan Evrópu getur staðan verið flóknari. Til að byrja með þurfa eigendur að leita upplýsinga um innkallanir ökutækisins sjálfir. Jafnvel þegar staðfest er að framleiðandi hafi innkallað ökutækið á þeim markaði sem það var ætlað getur verið flóknara að ráða hver eigi að framkvæma viðgerð og hver beri að greiða fyrir. Í versta falli gætu eigendur því miður setið uppi með allan kostnað sem hlýst af viðgerð ökutækisins sem í mörgum tilfellum getur verið himinhár.
Hvað er hægt að gera?
Ef þú átt ökutæki sem framleiðandi hafði ekki ætlað á evrópskan markað, eða hyggur á kaup eða innflutning á slíku tæki, er mikilvægt að fylgjast með upplýsingum frá framleiðendum og kanna reglulega hvort innköllun hafi verið gefin út fyrir þitt ökutæki. Hægt er að leita í innköllunargátt Umferðisöryggisstofnunnar Bandaríkjanna, NHTSA, og þá er möguleiki að upplýsingar birtist í Safety Gate.
Yfirleitt er það framleiðandi sem ber ábyrgð á að innkalla ökutækið, þó slíkt geti verið óljóst þegar um er að ræða ökutæki sem er ekki markaðssett í Evrópu af framleiðanda sjálfum. Ef ökutækið er flutt inn af sérstökum innflutningsaðila má byrja á að hafa samband við þann aðila til að athuga hvort þeir sinni innkölluninni. Gott væri líka að afla þessara upplýsinga áður en ökutækið er keypt. Ef starfandi er umboð á Íslandi fyrir viðkomandi ökutæki, má heyra í umboðinu hvort þeim hafi verið falið af framleiðanda að sinna innköllunum. Neiti umboð eða innflutningsaðili að sinna innköllun er hægt að heyra í evrópskum tengiliðum eða útibúum framleiðanda til að fá svör eða jafnvel móðurfélagi á því markaðssvæði sem innköllunin var gefin út. Ef óljóst er hver það er geta eigendur haft samband við HMS sem leiðbeinir þeim eftir bestu getu. Neiti framleiðandi að sinna innköllun er líklegt að eigandi sitji uppi með að þurfa að gera úrbætur á sínu ökutæki á eigin kostnað.
Fyrir þá sem eru á höttunum eftir notuðum bílum en hugnast ekki óþarfa vesen væri hægt að spyrja söluaðila ökutækisins hvort um sé að ræða ökutæki ætlað öðru markaðssvæði. Þá ættu upplýsingar um það að finnast í ökutækjaskrá. Dæmi eru um að fólk kaupi notaðan bíl af bílasölu sem síðar kemur í ljós að á hvílir innköllun sem enginn vill ábyrgjast.
Deildu






