CE-merktar byggingarvörur
Þegar til er samhæfður staðall fyrir byggingarvöru er gerð krafa um að CE-merkja vöruna áður en hún er sett á markað. Þá eru mikilvægir eiginleikar vörunnar metnir og settir fram á samræmdan hátt í yfirlýsingu um nothæfi.


Áformuð not byggingarvöru og mikilvægir eiginleikar
Framleiðandi byggingarvöru skilgreinir áformuð not vöru sinnar. Í ZA viðauka samhæfðs staðals fyrir viðkomandi vöru kemur fram hvaða mikilvægu eiginleika framleiðandi skal meta eða láta meta miðað við áformuð not vörunnar. Mikilvægu eiginleikarnir varða grunnkröfur um mannvirki.
Framleiðandi setur þá mikilvægu eiginleika, sem hann hefur metið eða látið meta, fram í yfirlýsingu um nothæfi sem fylgir byggingarvörunni. Yfirlýsing um nothæfi segir því til um nothæfi viðkomandi byggingarvöru í mannvirkjagerð. Þegar framleiðandi hefur útbúið yfirlýsingu um nothæfi má hann CE-merkja vöru sína.
Framleiðandi getur ákveðið að meta aðeins hluta þeirra mikilvægu eiginleika sem farið er fram á í samhæfða staðlinum en slíkt getur haft í för með sér að byggingarvara hans sé ekki nothæf í einhverjum tilfellum.

Skyldur fagaðila vegna markaðssetningar CE-merktrar byggingarvöru
Upplýsingar um mikilvæga eiginleika byggingarvöru þurfa að vera aðgengilegar og fylgja vörunni en það eykur líkur á að valin sé byggingarvara sem sannarlega uppfyllir þær kröfur sem til hennar eru gerðar. Allir fagaðilar sem hafa aðkomu að markaðssetningu CE-merktrar byggingarvöru skulu tryggja að fullnægjandi gögn fylgi henni.
Fagaðilarnir eru einu nafni nefndir rekstraraðilar en skilgreiningar og skyldur þeirra má finna hér
Rekstraraðili
Lög um byggingarvörur nr. 114/2014 tilgreina þá aðila sem bera ábyrgð á því að markaðssett byggingarvara sé CE-merkt á réttan hátt. Slíkir aðilar eru nefndir rekstraraðilar og skv. lögunum og bera þeir ábyrgð á því að byggingarvara sem þeir bjóða fram á markaði sé rétt markaðssett, þ.e.a.s. rétt CE-merkt, að henni fylgi yfirlýsing um nothæfi o.þ.h. Skyldur rekstraraðila eru ítarlega skilgreindar í III. kafla reglugerðar ESB nr. 305/2011, sbr. lög um byggingarvörur nr. 114/2014.
Rekstraraðilar sem markaðssetja byggingarvörur hér á landi þurfa að kynna sér þessar reglur vandlega. Hér að neðan er aðeins birt yfirlit um helstu skyldur rekstraraðila.
Framleiðandi
Einstaklingur eða lögaðili, sem framleiðir byggingarvöru eða lætur búa til eða framleiða slíka vöru og setur hana á markað undir sínu nafni eða merki. Yfirlit yfir helstu skyldur framleiðanda: