CE merkingar

CE-merkingin er yfirlýsing ábyrgðaraðila um að viðkomandi vara uppfylli grunnkröfur þeirra Evróputilskipana sem um hana gilda og að við mat á samræmi hafi verið beitt þeim aðferðum sem tilteknar eru í viðkomandi tilskipunum.

CE-merkingin er ekki eingöngu yfirlýsing um að varan uppfylli kröfur tiltekinnar tilskipunar heldur allra Evróputilskipana sem um viðkomandi vöru kunna að gilda og kveða á um CE-merkingu.

CE-merkingin er ekki gæðastimpill, hún segir t.d. ekkert til um endingu vörunnar.