26. nóvember 2025

Varasöm leikföng af netsölutorgi

26. nóvember 2025

Varasöm leikföng af netsölutorgi

Leikföng

Barnavörur

Tilkynning

HMS fór í úttekt á leikföngum sem keyptar voru af netsölutorgi.

Meðfylgjandi eru myndir af leikföngum sem uppfylla ekki leikfangastaðal og því talin hættuleg fyrir börn.

HMS varar við þessum leikföngum og hvetur fólk til að taka þau úr umferð.

Nánar um niðurstöðu úttektar á vörum frá netsölutorgum.

Hver er hættan?

Köfnunarhætta og almenn slysahætta

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

Taka vörurnar úr umferð

Söluaðilar

Temu

Er varan CE-merkt?

Deildu

Nýjar tilkynningar

Leikföng

Tilkynning

3. júlí 2026

Innköllun í Bretlandi á leikfanginu Squeezy Dumplings

HMS og Umhverfis- og orkustofnun vekja athygli á innköllun í Bretlandi á Squeezy Dumplings leikfangi vegna efnahættu. Um er að ræða mjúkt plastleikfang í körfulaga plastumbúðum. Varan hefur verið innkölluð í Bretlandi þar sem ytra lag leikfangsins inniheldur of mikið magn af benseni. Bensen er þekkt krabbameinsvaldandi efni og getur valdið skemmdum á erfðaefni. Því er mikilvægt að draga úr allri ónauðsynlegri útsetningu fyrir efninu, sérstaklega hjá börnum. Innöndun bensens getur jafnframt valdið ertingu í augum, nefi og hálsi. Útsetning fyrir miklu magni getur einnig valdið sviðatilfinningu í meltingarvegi og ertingu í húð. Dreifingaraðili vörunnar í Bretlandi er Samsons Cash and Carry Ltd. Á vörunni er hvorki vörunúmer né lotunúmer. Ekki er vitað hvort varan hafi verið seld hér á landi, en gera má ráð fyrir að hún geti verið í umferð hérlendis, til dæmis vegna kaupa erlendis eða í gegnum netverslanir. Neytendur sem eiga vöruna eru hvattir til að hætta notkun hennar tafarlaust. Jafnframt eru foreldrar og forráðamenn hvattir til að vera vakandi fyrir leikföngum barna sinna. Ef leikfang hefur sterka eða óvenjulega efnalykt, eða ef grunur vaknar um að það geti verið óöruggt, er ráðlagt að taka það úr umferð og láta börn ekki leika sér með það. Nánari upplýsingar má finna í tilkynningu breskra yfirvalda í tengli hér fyrir neðan.